Nú er í gangi síðasta námskeið vorannar, IST 151 - Hönnun fjarskiptalagna, og er kennt fyrir fullu húsi.

Verið er að vinna að dagskrá haustannar og mun hún birtast innan tíðar.  Er stefnt að því að námskeið hefjist um miðjan september.

Á vorönn var farið í að bjóða uppá valin námskeið úti á landi og miðað við reynsluna sem af því fékkst, þá er stefnt að því að halda því áfram á komandi haustönn.

Væntir starfsfólk Rafiðnaðarskólans áframhaldandi góðra samskipta við félagsmenn.