Námskeiðið "Hugað að starfslokum" hefur fengið mjög góðar viðtökur og er nú svo komið að fullt er á námskeiðið og tvö aukanámskeið til viðbótar. 

Rafiðnaðarskólinn mun halda þetta námskeið aftur síðar en ekki er ljóst að svo komnu hvenær það verður.  Hægt er að skrá sig á biðlista með því að senda okkur línu á "Hafðu samband" og þá verða þeir í forgangi þegar næstu námskeið komast á dagskrá og einnig verður haft samband við fólk á þeim lista ef sæti skildu losna á þeim námskeiðum sem nú eru fullbókuð.