Iðnmeistaranám í rafiðngreinum er 68 einingar (framhaldsskólaeiningar) nám á 4. hæfniþrepi íslensks hæfniramma um menntun. Náminu er skipt upp í tvo hluta, A og B-hluta.

Í A-hluta eru grunnáfangar í rekstri, stjórnun og stofnun fyrirtækja, samtals 27 einingar. Í B-hluta eru einnig áfangar tengdir fyrirtækjum og rekstri auk fagtengds efnis, samtals 38 einingar.

Nemendur taka A-hluta námsins og 11 einingar af B-hluta námsins í framhaldsskóla sem býður upp á það og er það ýmist í dreifnámi/fjarnámi eða staðbundnum lotum.

Skólar sem bjóða upp á meistaranám í almennum hluta:

Tækniskólinn

Verkmenntaskólinn á Akureyri


RAFMENNT annast kennslu í faggreinum B-hlutans fyrir raf-, rafveitu- og rafeindavirkja. Hægt er að skrá sig hér fyrir neðan eða skrá sig á inn í "námskeið í boði".

Hægt er að vera skráður á mörg námskeið en fylla þarf út umsókn fyrir hvert námskeið fyrir sig þegar sótt er um. 


Meistaranámið miðar að því að gera nemendur hæfa til að reka fyrirtæki skv. 10. grein iðnaðarlaga nr. 42/1978 og vera færa um að sjá um leiðsögn og kennslu iðnnema í eigin iðngrein. Hver maður getur leyst til sín meistarabréf ef hann fullnægir skilyrðum 3. gr. laganna, hefur lokið sveinsprófi, unnið síðan undir stjórn meistara í iðngrein sinni eitt ár minnst og jafnframt lokið meistaraprófi í iðninni frá meistaraskóla.

Námsmatið á að vera leiðbeinandi fyrir nemendur og gefa þeim möguleika á að fylgjast með eigin árangri. Það skal vera fjölbreytt, s.s. skrifleg próf, verkefni, kynningar og fleira. Lögð er áhersla á verkefnabundið nám þar sem nemendur vinna einir eða í hópi með verkefni tengd sínu fagi.

Nemendur þurfa að ljúka hverjum áfanga fyrir sig með einkunninni 5 að lágmarki. Þeir nemendur sem þess óska geta hafið nám í faggreinum RAFMENNTAR þótt þeir hafi ekki lokið kjarnagreinum A-hlutans. Mælt er með að áfanginn „Grunnur að gæðahandbók“ sé tekinn á fyrstu önn og lokaverkefni hvers hluta er unnið samhliða öðrum áföngum hlutans.

Til að innritast í meistaranám þarf nemandi að hafa staðist sveinspróf í sinni iðngrein.

Náms- og starfsráðgjafi RAFMENNTAR aðstoðar nemendur við skipulag á námi og mælt er með að nemendur hafi samband og bóki viðtalstíma með því að hringja í síma 540-0171 eða senda tölvupóst á netfangið almasif(hjá)rafmennt.is 


Sótt er um rafrænt um löggildingu iðnmeistara í gegnum Mínar síður á vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS).

Upplýsingar um löggildingar hönnuða og iðnmeistara

Upplýsingar um löggildingu rafverktaka